Hvenær sláttur hófst á bæjum fór vissulega eftir sprettu og tíðarfari, en algengt var að byrja hann um tólftu sumarhelgina. Rúningur og ullarþvottur var að baki og sumir stilltu sig inn á að “bera niður” kvöldið sem komið var heim úr kaupstaðaferðinni, en mikið var lagt uppúr að hefja slátt á laugardegi. Fyrst var bærinn “losaður úr grasi” heimatúnið svo slegið en engjaheyskapur beið þar til síðsumars. Búskapur er heyskapur svo allt kapp var lagt á að afla vetrarforða sem vissulega var miserfitt, og réðst af landgæðum, tíðarfari og ekki síst þeim mannafla sem í boði var þegar allt var unnið með handverkfærum. En heyskapurinn var samt umlukinn ákveðinni rómantík. Töðuilmur, ærsl í ungu fólki og gleði yfir góðu dagsverki ekki síst þegar fyrningardroparnir féllu að hirðingu lokinni lifa í minningu þeirra sem tóku þátt.
-
Færslusöfn
- september 2024
- júlí 2024
- júní 2024
- september 2023
- júlí 2023
- mars 2022
- október 2021
- janúar 2021
- desember 2020
- nóvember 2020
- janúar 2020
- júlí 2019
- júlí 2018
- maí 2018
- apríl 2018
- desember 2017
- október 2017
- júlí 2017
- maí 2017
- desember 2016
- nóvember 2016
- október 2016
- júní 2016
- febrúar 2016
- október 2015
- september 2015
- ágúst 2015
- október 2014
- janúar 2014
- júlí 2013
- maí 2013
-
Tækni