Hvítserkur


Málverk af Hvítserk við Húnaflóa. Málverkið sýnir að málarinn lítur Hvítserk nokkuð sérstæðum augum og hefur mikið hugmyndaflug.

Málverkið er í tréramma sem, er sléttur og einfaldur að allri gerð. Hann er 90 x 70 cm. að utanmáli og 59 x 79 cm. að innanmáli.

 

Málverkið er eftir Ísleif Konráðsson sem er strandamaður að uppruna. Ísleifur byrjaði að mála á gamals aldri og hefur hann haldið nokkrar málverkasýningar. Hann gaf safninu málverkið á opnunardegi þess 9. júlí 1967.

Ísleifur Konráðsson var fæddur á Stað í Steingrímsfirði 5. febrúar 1889. Hann var sonur Konráðs Sigurðssonar frá Stóru-Ávík í Trékyllisvík og Þorbjargar Jónsdóttur, frá Kaldranesi. Hann ólst upp hjá Ólöfu Jörundardóttur á Hafnarhólma. Ísleifur ferðaðist víða um landið í leit að myndefni, hann málaði myndir frá þeim stöðum sem honum þóttu fallegir, hrifnastur var hann þó af því að mála dranga og voga. Eftir hann liggja margar fallegar myndir.

Þessi færsla var birt undir 2018, Safngripir. Bókamerkja beinan tengil.